Siðareglur Félags lífeindafræðinga Lífeindafræði: Lífeindafræðingar stunda rannsóknir í lífvísindum innan heilbrigðiskerfisins og í einkafyrirtækjum Lífeindafræðingur: Lífeindafræðingur sýni í starfi sínu ábyrgð gagnvart einstaklingum, samfélagi og mannkyni, skal vera vandur að virðingu sinni jafnframt því að standa vörð um álit og virðingu stéttar sinnar. Lífeindafræðingur og skjólstæðingur: Lífeindafræðingur vinni fordómalaust og án þess að fara í manngreinarálit. Hann virði mannhelgi skjólstæðings síns, sjálfsákvörðunarrétt hans og virði þagnarskyldu varðandi upplýsingar um skjólstæðinga og niðurstöður rannsókna. Lífeindafræðingur, starfið og menntun: Lífeindafræðingur virði þá ábyrgð sem starfinu og menntun hans fylgir, tileinki sér nýjungar og auki menntun sína í hvívetna. Lífeindafræðingur og samstarfsfólk: Lífeindafræðingur sýni samstöðu með öðrum lífeindafræðingum, rækti samvinnu við aðrar lífvísinda- og heilbrigðisstéttir og miðli af þekkingu sinni og reynslu til samstarfsfólks, nemenda í lífvísindum og annarra heilbrigðishópa. Lífeindafræðingur og samfélagið: Lífeindafræðingi ber að sýna sanngirni og réttsýni í hvívetna. Hann hlýti siðareglum þessum, virði lög stéttar sinnar og samfélagsins. ------------------------------------- Siðareglur þessar ber ekki að skoða sem tæmandi lýsingu á góðum starfsháttum lífeindafræðinga. Lífeindafræðingur skal ávallt auðsýna umhyggju og beita dómgreind sinni í samræmi við aðstæður. |
Lífeindafræði - lykill að lækningu


