Tímarit Félags lífeindafræðinga er gefið út einu sinni á ári og hafa nú þegar komið út tveir árgangar. Tímaritið kemur í stað Blaðs meinatækna sem félagið gaf út allt frá árinu 1971. Markmið Tímarits lífeindafræðinga er m.a. að gefa út ritrýndar fræðigreinar auk annars efnis til gagns og upplýsingar fyrir lesendur.